Ég heiti Sigurður Óskarsson og hef áralanga reynslu af störfum innan rafmagnsiðnaðarins, meðal annars á sviði framkvæmda, þjónustu, eftirlits og kennslu.
Ég hef starfað hjá ýmsum rafverktökum og veitufyrirtækjum og tekið þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Þau hafa eflt þekkingu mína á rafkerfum, mismunandi spennustigum, öryggislausnum og starfsháttum innan rafiðngreina.
Auk þess hef ég starfað við kennslu á framhaldsskólastigi og miðlað fræðilegri og verklegrri þekkingu til nemenda.
Ég hef einnig unnið við uppsetningu og þjónustu öryggismyndavéla. Ég sérhæfi mig í IP-myndavélakerfum fyrir heimili og fyrirtæki, sem krefjast færni í netkerfum, forritun og hönnun öryggislausna.
Ég hef sinnt kennslu í rafvirkjun í framhaldsskólum, meðal annars við Fjölbrautaskóla Vesturlands og Menntaskólann á Ísafirði.
Þar sá ég um þróun grunnbrautar í rafvirkjun, hönnun og uppsetningu kennsluaðstöðu, útgáfu kennsluefnis og rekstur fræðsluefnis á netinu.
Ég reki kennsluvefinn rafkall.is og YouTube-rásina @drvolt með fræðslumyndböndum fyrir nemendur og áhugasama.
Ég er nú í diplómanámi í kennslufræðum við Háskóla Íslands. Námið er 60 einingar og veitir formleg kennsluréttindi með áherslu á kennslufræði, verklega leiðsögn og námsmat í iðngreinum.
Með víðtæka reynslu úr iðnaði, öryggismálum og kennslu tel ég mig geta miðlað dýrmættri þekkingu á áhrifaríkan hátt. Ég hef brennandi áhuga á að leiðbeina nýjum rafvirkjum og stuðla að tengingu náms og veruleika í iðngreinum.