Í áfanganum eru kynnt helstu stýrikerfi sem notuð eru í iðnstýringum, þ.e. segulliðastýringar, og iðntölvustýringar og farið dýpra í segulliðastýringar, þ.e. kraft- og stýrirásir, heldur en gert var í STYR1A5. Farið er yfir virkni og notkun yfirálagsvarna, mótorvarrofa og varnarbúnaðar sem notaður er í kraft- og stýrirásum. Haldið er áfram með teikningar og staðla sem og kennslu teikniforrita fyrir segulliðastýringar (t.d. Acad og/eða PCschematic). Farið er yfir notkun tengilista og tengilistanúmera, strengja- og víramerkingar. Námið í áfanganum byggist að miklu leyti á verkefnavinnu og verklegum æfingum þar sem nemendur brjóta verkefni til mergjar, tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.
Námsgögn
Stýringar STR4 (h. Eiríkur Guðmundsson) rafbók.is
Kennslubók
Stýringar STR4 (h. Helgi Svavar Reimarsson) rafbók.is
Verkefnibók
Áhersla er lögð á leiðsagnarmat. Námsmat er í höndum
kennara en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá MÍ.
Nemendur í dagskóla þurfa að vera með að minnsta kosti 85%
mætingu til að fá lokamat í áfanganum.
Miðað er við að nemandi hafi náð 45% námsmarkmiða í lok
áfanga til að standast námsmat.
Gott að nemendur koma með verkfæri með sér í tíma
Gangi þér vel
kv. Sigurður Óskarsson