Vígahnöttur sprakk líklega skammt frá Hrafnabjörgum

| Suðurland

Ljósrák á himni
Ljósrák sást á himni þegar vígahnötturinn sprakk.

Seint að kvöldi 2. júlí heyrðust miklar drunur víða um Suðurland. Í fyrstu töldu margir að um jarðskjálfta eða eldgos væri að ræða, en síðar kom í ljós að líklegast hefði vígahnöttur sprungið í lofthjúpnum.

Sprengingin varð um klukkan 22:42 í um 37 km hæð, um 15 km norðaustur af Þingvöllum, nærri Hrafnabjörgum.

Hvað er vígahnöttur?

Vígahnöttur er mjög bjartur loftsteinn sem glóir eða springur þegar hann fer inn í lofthjúp jarðar á miklum hraða. Við núning hitnar hann gríðarlega og getur sprungið áður en hann nær jörðu.

Loftsteinn
Loftsteinn af svipaðri stærð og sá sem sprakk yfir Íslandi.

Staðsetning fundin með mælingum

Graf af komutímum
Mældir komutímar á 25 skjálftamælum.

Jarðeðlisfræðingurinn Hjalti Sigurjónsson greindi gögn frá 25 skjálftamælum. Með samanburði á mældum og reiknuðum komutímum tókst að staðsetja sprenginguna með góðri nákvæmni.

Fleiri myndir

Mynd 002
Mynd 001
Mynd 003

Heimildir