Hér eru einfaldar skipanir sem nýtast þegar verið er að vinna í Linux, t.d. að uppfæra kerfið, setja upp pakka, búa til möppu og keyra .sh skrár.
Fyrst er gott að uppfæra pakkalista og uppfærslur í kerfinu:
sudo apt-get update
sudo apt-get upgrade
sudo apt-get update sækir nýjan lista yfir pakka af netinu.sudo apt-get upgrade uppfærir pakka sem þegar eru uppsettir.Ef búið er að ná í pakka af netinu sem er fyrir Linux (t.d. .deb skrá) má setja hann upp svona:
sudo apt install ./pakki.deb
./pakki.deb vísar í skrána í núverandi möppu.
Til að búa til nýja möppu er notuð skipunin mkdir (make directory):
mkdir nafn_á_möppu
.sh skrá (shell-skriftu)Til að keyra .sh skrá þarf tvö skref:
chmod +x eitthvad.sh
chmod +x bætir „execute“ leyfi við skrána.
./eitthvad.sh
Punkturinn ./ þýðir „keyra skrána sem er í núverandi möppu“.
catcat stendur fyrir „concatenate“ og er oft notað til að sjá innihald skráa:
cat eitthvad.txt
Þetta prentar alla skrána eitthvad.txt í gluggann (terminal).
Hér eru gagnlegar skipanir sem nýtast þegar verið er að laga kerfið, athuga disk, keyra update eða laga kerfisskrár.
Til að þvinga Windows til að leita að uppfærslum:
wuauclt /detectnow
wuauclt /updatenow
Eða í PowerShell (með PSWindowsUpdate viðbótinni):
Install-WindowsUpdate
Skannar og lagar villur á harða disknum. Getur beðið um endurræsingu:
chkdsk C: /f /r
/f — lagar villur á disknum/r — finnur og einangrar gallaða geira + endurheimtir gögnFinnur og lagar skemmdar Windows kerfisskrár:
sfc /scannow
Mælt er með að keyra í Run as Administrator.
Ef SFC finnur villur sem það getur ekki lagað, keyrir þú DISM:
DISM /Online /Cleanup-Image /RestoreHealth
Þetta sækir rétt kerfiskrár frá Windows Update og lagfærir kerfisímyndina.
Þessar skipanir opna gagnleg innbyggð Windows-tól. Sláðu inn í Win + R eða CMD/PowerShell.
mrt
Keyrir Malicious Software Removal Tool — skannar fyrir spilliforritum.
cleanmgr
Opnar Disk Cleanup — hreinsar temp-skrár og losar pláss.
msinfo32
Sýnir ítarlegar upplýsingar um vélbúnað, drif, stýrikerfi og hugbúnað.
control admintools
Opnar Administrative Tools — þar á meðal Services, Event Viewer og Disk Management.
ncpa.cpl
Opnar glugga fyrir Network Connections — netkort, Wi-Fi, Ethernet o.fl.
.MSC skipanir opna öflug kerfisstjórnunartól sem eru mjög gagnleg þegar leysa þarf vandamál, kíkja á logga eða breyta kerfishegðun.
services.msc
Opnar Services — ræsing, stopp og stjórnun á þjónustum.
gpedit.msc
Opnar Local Group Policy Editor — stillingar fyrir hegðun Windows. Ath: virkar ekki í Home útgáfum.
secpol.msc
Opnar Local Security Policy — lykilstillingar fyrir öryggi og heimildir.
compmgmt.msc
Computer Management — sameinar mörg kerfistól á einum stað.
perfmon.msc
Performance Monitor — greinir álags- og árangursvísar.
devmgmt.msc
Device Manager — uppsetning og bilanagreining tölvubúnaðar.
diskmgmt.msc
Disk Management — sneiðing drifa, bókun, volume-stjórnun.
eventvwr.msc
Event Viewer — skoðar kerfislogga, villur og viðvaranir.
taskschd.msc
Task Scheduler — býr til og stýrir sjálfvirkum verkefnum.
Hér er einföld og örugg leið til að taka afrit af driverum (reklum) á Windows og setja þá upp aftur eftir enduruppsetningu eða á nýrri vél. Aðferðin notar innbyggð Windows-tól: DISM og PnPUtil.
Opnaðu Command Prompt (CMD) sem Administrator og keyrðu:
dism /online /export-driver /destination:D:\012DriverBackup
Þetta safnar driverum úr Driver Store og setur í möppuna D:\012DriverBackup.
Opnaðu PowerShell sem Administrator og keyrðu:
systeminfo > D:\012DriverBackup\systeminfo.txt
pnputil /enum-drivers > D:\012DriverBackup\driver_list.txt
systeminfo.txt — upplýsingar um vélbúnað og Windows-uppsetningudriver_list.txt — listi yfir alla drivera (gagnlegt til að sannreyna hvað var til staðar)
Þegar búið er að afrita möppuna D:\012DriverBackup yfir á nýju vélina (t.d. af USB/ytri disk),
opnaðu PowerShell sem Administrator og keyrðu:
pnputil /add-driver "D:\012DriverBackup\*.inf" /subdirs /install
Þetta finnur allar .inf skrár í möppunni og undirmöppum og reynir að setja driverana upp sjálfvirkt.
Ábending: Haltu slóðum samræmdum (sama mappan í öllum skipunum) til að forðast villur.